Þankar
07.02.2008 07:05:50 / Drífa

loksins

Já loksins komst ég inn á síðuna mína. Ýmist hefur hún ekki fundist eða kerfið afneitað notendanafni og lykilorði. Hér hefur því ekkert verið skrifað í næstum mánuð, þrátt fyrir margar tilraunir.
En að sjálfsögðu er ég búin að gleyma öllu því sem ég hef ætlað að skrifa :haha:

En annars gengur lífið hér... búið að taka dágáðan pakka í veikindi, en þeir feðgar fengu streptokokka, Gummi fékk sýkingu í augað og ofaná allt saman hálsbólgu. Ég var hin hressasta á meðan (sem betur fer) en hef nú náð mér í yndislegt hor, hálsbólgu og sýkingu í augað. GAMAN!!!

Fórum í gær í sónar (34 vikur) og allt leit eins vel og hægt er út. Barnið komið í höfuðstöðu, fylgjan farin frá og fengum æðislega andlitsmynd :) Get svarið það að barnið er mjög líkt Magnúsi Ara í andliti:D Sem mér finnst bara allt í lagi þar sem hann er svo sætur :P

 Verið er að taka baðherbergið okkar í gegn (loksins) og er búið að vera ógeðslegt ástand þar í rúmar 2 vikur og megum búast við rúmlega viku í  viðbót. Þar er ekkert inni nema klósettið og ofninn og við þurfum því að fara annað í bað. Ágætis afsökun þó að kíkja til Írisar í sturtu og skoða nýjasta meðliminn :) en það væri líka voðalega notalegt að geta bara farið í bað heima hjá sér.... en þetta verður vonandi biðarinnar virði þar sem baðherbergið var ógeðslegt!

En nú fer víst að líða að því að ég þarf að fara í vinnu. Klukkan rétt að verða 7 og ég búin að vera meira og minna vakandi frá 4 vegna HORS :cry: en hér er reyndar eitthvað að bæta í vind og flughált í  Eiða svo það á eftir að koma í ljós hvort við förum þangað í dag eða ekki. Sigga ræður :)

En ég ætlaði bara rétt að láta vita af mér...

Ekki gleyma að kvitta :)
Kv. Drífa


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 21:31:59 / Drífa

afskiptasemi???

Nú er mér spurn... hversu mörg systkini ætli séu fædd með 1-2ja ára millibili? Ætli það gerist nánast aldrei að systur geti verið óléttar á sama ári??

Mér finnst alveg ótrúlegt hvaða viðbrögð maður fær fyrir það að vera ólétt þessa dagana. En frasar eins og "krafturinn í þér", "Bara strax aftur", "Ertu að koma með annað" og þess háttar finnst mér óþarfa afskiptasemi. Ég er jú ólétt aftur, af mínu öðru barni, krafturinn....tja það þarf nú ekkert svakalegan kraft til að búa þetta til, ég finn ekki fyrir miklum krafti eins og er og það er ekki eins og ég sé eina konan í heiminum sem eignast börn með 2ja ára fresti.
Hvernig svar vill fólk fá?? ætli það myndi ekki verða hissa ef ég kæmi með svar á við "Ja ég er nú voðalega kraftlítil þessa dagana og ekki planaði ég að verða ólétt og eiga barn þegar hitt er að verða 2ja ára!" eða.. "Já það var rosalegur kraftur í okkur að búa þetta til... hefðir átt að sjá það! og ekki ætla ég að vera að eiga börn fram eftir öllum aldri" (Ekki það að nokkuð í þessum svörum sé endilega hið rétta :) ) EN hvað kemur fólki þetta við!!

Og ekki nóg með það... Íris systir er jú ólétt líka og á að eiga nú á næstu vikum (er u.þ.b. 2 mánuðum á undan mér)  og það er bara eins og við séum að fjölga mannkyninu um helming, svo mikla athygli vekur þetta... á ég kannski að segja við fólk sem gerir athugasemd við það að við séum svona voða samstíga í þessu að Íris hafi sagt mér það að hún væri ólétt fljótlega eftir að hún vissi það svo að ég gæti gert hið sama!! Eða við fólk sem segir hversu voða eins við séum "já alveg ótrúlegt og þið systur líka... báðar með ljóst hár!!)

En sorry.. varð bara aðeins að blása þessu út.
ég er ekkert að segja að það geti ekki orðið erfitt að vera með 2 börn lítil...eða með 2ja ára aldursmuni, en hver segir að það sé eitthvað auðveldara að hafa 5 ár ....eða jafnvel 9??


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 13:28:31 / Drífa

eitt tekur við af öðru

Loksins þegar ég hélt að ég færi nú að verða nokkuð góð hrundi járnið í blóðinu með tilheyrandi orkuleysi og þreytu. Það er því ekkert um annað að gera en að reyna að hvíla sig og éta járn, bæði kvölds og morgna til að ná sér upp sem fyrst og í síðasta lagi fyrir fæðingu.
Ég er komin með hálfgert samviskubit yfir því að geta ekki hugsað almenninlega um barnið mitt sem ég á fyrir en hann fyrirgefur mér það vonandi einhverntíman.

En nú er ég komin 30 vikur og nokkra daga og get ekki sagt annað en að ég bíði spennt eftir fæðingardeginum sjálfum. (eða svona nokkrum dögum eftir hann :) )

Ekki er meira í fréttum hjá mér.

Kv. Drífa


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 14:38:58 / Drífa

2007/2008

Byrja á að óska öllum gleðilegs árs!

Árið 2007 var nokkurn vegin svona hjá mér:

-          Var heimavinnandi húsmóðir í fæðingarorlofi og námi fyrstu mánuðina
-          Fór að vinna rétt fyrir sumarfrí
-          Sumarfrí – ferðalag um vestfirðina
-          Tók á móti ferskum einstaklingum í skóla um miðjan ágúst og kenndi þeim fram til ársloka. 

Árið 2008 verður eitthvað á þennan hátt:
-          Kennsla fram að páskafríi (10 vikur)
-          20. mars – skírdagur – fæðingarorlof hefst og ætlunin að eignast barnið.
-          Restin af árinu – Heimavinnandi húsmóðir með 2 börn og 1 karl J 

Kannski breytist þetta nú eitthvað.. en það verður bara að vera þannig.. Ekki get ég farið skipuleggja árið 100% en þær breytingar verða þá vonandi til hagsmuna. Ekki er gert ráð fyrir neinum stórum breytingum þetta árið allavega.

Kv. Drífa


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 14:13:17 / Drífa

Blessuð jólin

Jólin komin og næstum farin. Eða allavega þessir helstu jóladagar.

Fékk fínar jólagjafir, takk fyrir þær.
Jólamaturinn var borðaður í sveitinni en annan í jólum var farið og bragðað á steikinni á Eskifirði. Fólk passar uppá að maður svelti nú ekki :D

Svana systir afmæli í dag, Til hamingju Svana.
Jólaball og bingó í sveitinni í kvöld, stefnan tekin þangað.
Hrönn systir afmæli á morgun. Til hamingju Hrönn.

Gamlárskvöld verður væntanlega tekið á Eskifirði.

Enn vottur af pest í húsinu. Allir íbúarnir ýmist hóstandi eða með hor nema bæði sé. Ég er misjöfn eftir dögum, en þó farin að geta sofið aðeins meira á næturnar sem er gott, en þrekið er ekki mikið.

Hef þetta ekki lengra að sinni og væntanlega verður ekkert nýtt hér fyrr en á nýju ári.

Gleðilegt ár og takk fyrir gamla!


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2007 10:06:51 / Drífa

Jólin eru að koma

Úff.. jólin eru bara alveg hinu megin við hornið!! og lítið verið gert á þessum bænum. En það skiptir svo sem ekki öllu máli, jólin koma þrátt fyrir það. Reyndar skellti ég í lakkrístoppa í gær og heppnuðust þeir bara askoti vel :) (er sko bakstur nr. 2 þar sem hinn er uppétinn). Eldhúsgólfið og stofugólfið var skúrað (og veitti nú ekki af), búið er að setja eitthvað af jólaskrautinu upp, jólakortin farin, flestar jólagjafirnar í húsi þannig að þetta er nú þokkalega vel af sér vikið. Í dag er stefnt á að klára restina af jólagjöfunum og jafnvel kaupa jólatré og þá geta jólin komið. Ekkert stress í gangi hér samt.
Nú af Svíjagrílunni er það helst að frétta að hún hefur eitthvað skánað en ekki nógu vel... en ég er allavega farin að ná örlítið meiri svefni og getað talað nokkuð eðlilega, með dálitlum nefhreim þó. 10 daga sýklalyfjaskammtur dugði þó ekki betur en þetta.
En loksins þegar ég var nú aðeins farin að geta þefað af loftinu og Gummi að klára prófin veikist þá ekki Magnús Ari 8|. Vaknaði á mánudagskvöldið með hita en svaf svo þokkalega um  nóttina og var hress á þriðjudagsmorgun og var sendur í leikskólann...en lá svo eins og skata í fangi einnar starfsstúlkunnar á deildinni þegar hann var sóttur og hefur verið heima síðan. Er samt nokkuð hress en litla matarlist og hita. Ætli þetta lagist ekki í dag þar sem þetta átti að vera síðasti dagurinn í leikskólanum fyrir jól.

Ég held áfram að telja niður í settan fæðingardag barns nr. 2 og nú eru eftir 13 vikur (eða 3 mánuðir). En maður verður að þrauka en ég verð að segja að það verður ljúft þegar þessu lýkur.

Já og segja má að hér byrji jólin einum degi fyrr þar sem Gummi á afmæli á Þorláksmessu og því er stefnan að allt sé tilbúið þann dag.

Ekki er þó alveg ákveðið hvar jólamaturinn verður borðaður en ætli maður sníki ekki af mömmu og pabba þetta árið ;)

En ætli það sé ekki best að huga að þvottinum..reyna að vinna niður skítahrúgurnar fyrir jólin :)

Gleðileg jól
Drífa


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 09:08:35 / Drífa

Svíjagrýla

Þá hefur pestin fengið nafn! Mér finnst ekki annað við hæfi en að skíra hana þar sem hún hefur nú dvalist hjá mér í meira en mánuð:( Svíjagrýla er nafnið - þar sem hún átti upptök sín í Svíþjóð.
En ég fékk nú einhverja stera hjá lækninum um daginn sem hafa hjálpað til við að losa um stíflur en hausverkurinn sem ég hef haft um helgina (sem ég tel vera aukaverkanir steranna)!! úff.. þetta er ljóta helvítið. Helgin var gjörsamlega ónýt. Ég fór ekki út úr húsi alla helgina og lá bara undir sæng. Enn jafn geðgóð við kallana mína8|8| Svo var þetta allt saman toppað í gærkvöldi þegar ég var komin með hita. Leið reyndar í allan gærdag eins og ég væri með hita nema það að mælirinn sýndi aldrei neitt fyrr en seint. Ég ákvað þá að taka skynsemina á þetta, hugsa um sjálfa mig (enda mælt með að maður geri það á meðgöngu) og er heima í dag. Er reyndar miklu skárri í dag en í gær, bara með nettan hausverk og get haft kveikt ljós án þess að það trufli. Eina sem vantar er að komast í góða, heita sturtu.

Já það var einmitt það:lol::lol::lol: heita og góða sturtu er ekki hægt að fara í hér vegna þess að blöndunartækið er bilað (ónýtt) og vill ekki senda vatnið upp í sturtuhausinn. Og ég er ekki alvegt stemmd fyrir að leggjast í bað þessa dagana. Ohh hvað ég elska þetta baðherbergi hér!!:^):^)

Já það mætti halda að geðheilsan sé ekki alveg heil á þessum bæ þessa dagana. :haha: En þetta verður nú vonandi allt komið í lag fyrir jólin.
Ætli maður noti ekki bara daginn í dag í að skrifa jólakortin ;)

hætt að nöldra í bili...


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 06:13:08 / Drífa

allavega einn

Já það er allavega einn sem enn nennir að kíkja hingað ennþá. Takk Bengta :D

Alveg merkilegt hvað einn þáttur í lífi manns getur gert það óbærilegt!!!
Nú er ég að kafna úr kvefi og búin að vera með það í 3 vikur. Reyndar er þetta nú orðið eitthvað undarlegt kvef og er ég farin að halda að þetta tengist meðgöngunni (svokallað meðgöngukvef). Fékk svona síðustu mánuðina þegar ég gekk með Magnús Ara og var að verða nett geðveik. En ég ætla takk fyrir ekki að vera svona í 4 mánuði í viðbót núna. Þá verður búið að leggja mig inn á geðdeild.
Ég get ekki andað með nefinu nema í einstaka skipti, varla talað og hvað þá sofið.  Telst frábært ef ég get sofið í 4 tíma í einu!!! Náði reyndar fleirum í nótt enda veitti ekki af. Hugsa um að ég tali við lækni í dag, en hef ekki mjög mikla trú á að hann finni töfralausnina... EN ef þið vitið gott ráð þá er ég opin fyrir öllu!

En hann Lárus átti afmæli í gær. Ti hamingju Lárus!

Segi þetta gott í bili


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 14:53:34 / Drífa

vetur

Síðst þegar ég skrifaði var sumar en nú er kominn vetur og ég held að það sé tímabært að loka þessu eða setja e-ð nýtt inn. Byrja á að prófa nýja færslu.

Nú ætlaði ég að vera að fyljgast með því þegar kveikt væri á jólatrénu við Samkaup en við litli stúfur ákváðum að leggja okkur og hann nývaknaður. Eiðakórinn átti að syngja nokkur lög og hefði verið gaman að heyra í þeim en ég veit fyrir víst að vel hefur tekist.

Auk þess að vera komin með bumbuna út í loftið og eiga erfiðara með lífið þess vegna þá hef ég náð mér í viðbjóðslegt kvef, er búin að hósta í rúmar 3 vikur og sef ekki fyrir nefstíflum sem eru algjörlega að fara með geðheilsuna. Aumingja karlarnir á heimilinu fá að finna fyrir því :$ Lenti í þessu þegar ég gekk með Magnús Ara og var í rúma 2 mánuði en nú á ég 4 eftir og sé ekki framá að geta haldið geðheilsunni allan þann tíma ef ég lendi í sömu sporum.:frown:

EN nú er spurning um að fá sér eitthvað í bumbuna og kíkja svo á snjóinn með stúf litla.

Kannski skrifa ég hér inn aftur fljótlega... svona ef það er einhver að fylgjast með þessu ennþá.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 14:23:06 / Drífa

sommertime

nú er sumar....

Já ég veit .... ég er ekki öflugasti bloggarinn, en það er samt alveg hellingur sem ég hafði hugsað mér að skella hér inn síðustu vikur en það fór nú ekki svo og nú man ég takmarkað hvað það var.

Fékk skemmtilegt símtal í gær frá Jónu, eftir að hún hafði fengið annað skemmtilegt símtal. Engin önnur en Sigrún Ólöf, bekkjarsystir okkar í grunnskóla, ætlar að skella sér til Íslands (býr í Noregi) um miðjan ágúst og verður hér fyrir austan í lok ágúst. Mikið verður gaman að hitta hana, en 11 ár eru síðan við hittumst síðast.

Boðskort í brúðkaup eru farin að detta í póstkassann... mér hefur aldrei verið boðið í brúðkaup fyrr en í vetur, nema kirkjuna hjá frænda mínum fyrir mörgum árum, en nú var mér boðið í 3 brúðkaup, eitt í Gummaætt (ég hef aldrei hitt fólkið) en þangað förum við ekki. Hin tvö eru mínmegin... 2 vinkonur mínar ætla að ganga upp að altarinu og bindast mannsefnum sínum, Þórey Magga og Sigga Ingó. Samgleðst þeim en það versta er að þær völdu sér sama dag en búa á sitthvoru landshorninu og þess vegna mun ég ekki komast í bæði þó að mig langi það voða mikið....Þetta gerir mér ægilega erfitt fyrir og ég hef þjáðst af valkvíða síðustu vikur...En þar sem ég þarf að vera í að vera í bænum 12. ágúst verður Þórey fyrir valinu.

ca. 2 vikur í ferðalag hér á bæ. Stefnan sett á Vestfirði. Gummi vinnur þessa viku og svo kominn í frí. Flutningar í ágúst.. ágústlok líklega. Fáum íbúð sem er herberginu stærri en þessi og ódýrari, styttra í skólann. Verður lúxus að komast aftur í mannabyggðir.

Veit ekki hvað ég á að segja meira... bæbæ


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 22:26:22 / Drífa

Heilt ár

Alveg merkilegt hvað tíminn er svakalega fljótur að líða.
Fyrir nákvæmlega ári síðan var ég á fæðingardeildinni á Neskaupsstað, nýbökuð móðir. (Ætli ég hafi ekki bara nákvæmlega verið að borða cheeros með miklum sykri :) )

En já litli prakkarinn minn er orðinn 1 árs í dag. Fyrsta barnaafmælið yfirstaðið og allir ánægðir með daginn. Hann fékk ægilega flottar afmælisgjafir og var líka rosalega ánægður með þær. (þeir sem vilja vita hvað hann fékk skoða bara síðuna hans)

En með þessu afmæli er maímánaðar-fjölskyldu-afmælistörn lokið.

styttist í sumarfrí :haha: 2 vikur eftir, vordagar og ýmis gleði í næstu viku og síðan starfsdagar í þeirri seinni. Tóm gleði og hamingja.

En annars hef ég ekkert meira að segja í bili..nema

Bless


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 15:40:15 / Drífa

ammmmmæli

ekki ólíklegt að menn hafi haldið að ég væri bráðnuð ja eða frosin... en ég hef einfaldlega ekki haft mikið að segja og þar að auki ekki mikinn tíma aflögu.

Byrjuð að vinna. Það er svo sem allt í lagi en tel dagana niður í sumarfrí og allir frídagar teknir með fögnuði. En þetta styttist óðum. 3 vikur eftir með eitthvað af frídögum og ferðalögum.
Hlakka til sumarsins, en hér er bara búið að vera skítaveður síðan sólin var hér um daginn. kuldi, rok og rigning.

Fullt af fólki búið að eiga afmæli. Drífa Dröfn, mamma, Helga, Sandra, Ívar Aron, Arna Karen, María, og svo að sjáflsögðu ég :). Magnús Ari verður svo eins árs næsta fimmtudag.... farinn að labba dálítið og kominn með 11 tennur. Bablar heil ósköp, gerir sig skiljanlegan með þó nokkrum orðum og skilur helling það sem sagt er við hann. Dugnaðardrengur :)

Hef ekki meira að segja í bili..

Drífa


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 17:04:48 / Drífa

sumar og sól

Bara æðislegt veður búið að vera síðustu daga og spárnar segja að framhald verði á því.

 Helgin lofar mjög góðu, sól og allt að 17 og 18 stiga hita. MMmmmmm

kveð úr sólinni

Drífa


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 11:44:39 / Drífa

babbidíbú

Hef sjaldan eða aldrei verið jafn snökk að fletta í gegnum blogg dagsins. Kannski vegna þess að nú hef ég nægan tíma til að hangsa en einnig vegna þess að fólkið sem ég les hjá er ekkert allt of aktívt við að skrifa þessa dagana :o. Hef svo sem ekki efni á því að kvarta. Ekki legg ég mitt af mörkum!!

En við Magnús Ari erum að dúllast þessa dagana. Vika þar til ég fer að vinna. Kláraði skólann í síðustu viku þannig að nú hef ég fullt af aukatíma :)
Skelltum okkur til Erlu og Karítasar í morgun, en þar ætlar Magnús Ari að fá að vera næsta mánuðinn (rúmlega). Hef ekki áhyggjur af honum þar.
Ég fer reyndar í smá upphitun á morgun, verðandi 1. bekkur er að koma í heimsókn í skólann og ég fer til þess að taka á móti þeim. Kenni þeim svo að öllum líkindum næsta vetur. Verð s.s. enn einn veturinn á Eiðum, sem er bara æðislegt.
Hef meiri áhyggjur af þessum vikum sem ég á að kenna í maí-júní. Stundataflan hljómar ekkert allt of vel, en það bjargast. ÞEtta eru bara 26 dagar ;)

Annars er búið að vera rosalega flott veður hér síðustu daga. Alveg geggjað á sunnudaginn og fórum við í skemmtilega gönguferð í sveitinni og sáum þar m.a. 100 hreindýr. Magnús Ari prófaði að sitja á hesti og svaka stuð.

En nú hef ég ekkert meira að segja...

Drífa


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 19:31:35 / Drífa

Gleðilegt sumar

Sumardagurinn fyrsti í dag og þakka ég því fyrir veturinn um leið og ég óska ykkur gleðilegs sumars.

Lítið að gerast hér. Var í Reykjavík um síðustu helgi, eða frá miðvikudagskvöldi til sunnudags. Fimmtudagur fór í KHI-skólann, föstudagur, laugardagur og sunnudagur í HERBALIFE skóla. Frábær helgi.

Ég byrja sumarið af krafti. Byrjuð í Fit Pilates og farin af stað með hóp af fólki sem vill ná árangri í HERBALIFE.

Ekki meira í bili.

Drífa


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10